Jæja

14. október 2008 - 2 ummæli

Jæja já nú á maður að far að skrifa eitthvað hér…. en fyrst verð ég nú að segja eitt sem skéði og er bísna fyndið…. að mínu mati…. Ég lagði af stað í bæinn um 5 leitið á sunnudaginn. Þegar ég var að keyra í gegnum Lyngás hryngdi pabbi í mig til að bjóða mér síðasta tækifærið til að koma heim að mjólka því að vinnukonan var víst að leggja af stað frá Selfossi heim. (svo ég skýri málið nú smá þá er þetta skóla stelpa sem er að koma hérna í eins konar verknám frá þýskalandi minnir mig og eru þær nokkrar sem fara á nokkra bæi) En allavegana þá af þakkaði ég þetta boð frá pabba góðfúslega og sagðist ættla koma bara fljótt heim á föstudaginn. Svo í gær þá sendi ég pabba sms sem í stóð: “Hvernig er stelpan? er eitthvað hægt að nota hana?” fljótlega fékk ég til baka frá honum, og takið eftir að mér fannst þetta fyndið aðalega því að ég fékk þetta frá pabba. En til baka kom orðrétt:”Hún er ung og feit, já ég held það” ég emjaði úr hlátri þegar ég las þetta.

En að öðru. Valey mín fór út til Ástralíu í gær og á hún yfir höði sér 3 daga ferðaleg eða eitthvað um það og vil ég bara óska henni góðs gengis.

ég veit ekki hvað ég á að segja meir. Ég er alltaf í skólanum bara að láta mér leiðast.

En nóg að engu í bili.

Skólinn

24. september 2008 - 2 ummæli

Jæja þá er skólinn byrjaður. þó að ég nenni því ekki þá hlít ég að þrauka í einn vetur og þá er þetta búið. Illu er best af loknu sagði einhvað gáfnalós.

fyrsta vikan er búnað vera soltið spes. Ég er að læra að plægja sem er gott útaf fyrir sig og bísna gaman ef veðrið væri betra. Ég að vísu frétti það að búnaðarfélagið í austur Landeyjum eiga 7 skéra plóg, þannig að þega´r ég fer að plægja heima verður hann sko fenginn og þetta gert með stæl.

Í dag þá var ég að krifja eina stóra kind og eitt lítið svíns barn, og var að læra með meltinguna í þeim. Við vorum í gróðurhúsinu hér á eyrinni og var vel heitt þegar smá sólarglæta skein, sem gerði það að verkum að þegar gummsinu var mokað úr vömbinni á kindinni var vart líft þarna inni og ekki er góðlykt af hálf meltu grasinu fyrir.

Það ðsem kom mér mest á óvart við þessa kennslu var það að lifrin á kindinni sem hefur verið um 2-4 ára gömul var nánast minni en lifrin af gríslingnum sem var um 4-5 mánaða gamall. Segið svo að svínin séu lítil og sæt.

Annars er lítið að frétta nema það að ég er að fara í ferð á morgun með öllum búfræðingsnemum um snæfellsnesið að skoða einhveja sveitabæi…. þetta þýðir 10 tímar í rútu að hlusta á grút leiðinlegann kennara að röfla eitthvað…..

en ég er farinn að horfa á mynd eða eitthvað….. veriði sæl

Pirraður

15. september 2008 - Ein ummæli

Jæja þetta er ekki búinn að vera minn dagur. Ég var að keyra áburðinu inn í hús og það gekk ekkert vel, pokarnir voru að slitna og einhvernveginn fór ég að því að keyra á baggatínuna sem er þarna inni og skemdi hanna. Ég beið eftir að þrjú dekk myndu springa eða ég tæki speglana af við að fara út og inn í geymsluna og það var næstum búið að ské… nokkrum sinnum. Ég var orðinn það pirraður að ég var kominn með höfuðverk útaf þessu öllu. svo fór ég smá í fjósið til m&p og þá einhvernveginn fór verkurinn og ég róaðist allur niður einhvernveginn, kýrnar mínar eru bestar… hehe…

En já ég fór í kveðju partý á laugardaginn hjá Gulla og Önnu, það var nebbla verið að kveðja Önnu því hún er að fara út til Bandaríkjana til að læra einkaþjálfarann. en allavegana þá voru 6 manns þarna utan við mig Jón, Arndísi og Valey Söru.  Það var vel drukkið þarna hjá þeim svo skeltum við Valey Sara okkur niðrí bæ og var meira drukkið þar og hitt Magga og Einar Þór, sm er náungi´sem ég hef ekki hitt mjög lengi og grukkum við eitthvað saman so man ég lítið meira.

Ég fór að spá í einu um daginn, og það er hvað er það sem flokkar fólk undir vini eða kunningja? Meina hvernig verða kunningja manns, vinir manns? Hvað er það sem skilur þarna á milli? Ég spurði svo eina manneskju að því og þá sagði hún: “vinátta er sníst um að gefa og þiggja” minnir að hún hafi sagt þetta svona en ég var vel í glasi þegar það var tala um þetta. en já ég fór að spá í vini mína og kunningja og ég á ekki marga vini, en þeir fáu vinirnir mínir eru verulega góðir vinir sem stannda vel með manni í öllu. Á ég einn vin sem ég tala ekki við um svona eins og til dæmis: “Í dag þá líður mér svona og lalala” þið skiljið en ég tala meira við hann um “hey sjáðu þessa maður… tilkippileg… er haggi” og eitthvað svoleiðis.

en ef þetta meikar eitthvað senns þá vil ég heyra skoðun ykkar en ef þettta meikar ekkert þá bara fariði í rassgat….hehe ég er farinn og er aðeins rólegri….

norður og suður og smá pælingar….

10. september 2008 - Ein ummæli

Jæja er ekki kominn tími á smá skrif fyrir þessa fáu sem nenna að lesa um mig?

Landbúnaðarsýningin kom og fór með tilheyrandi djammi sem endaði ekkert alltofvel, en ekki verður farið nánar út í það. Á sýninguna komu Valey Sara mín og Jóhannes skólafélagi frá bændaskólanum góða, og var voða gaman að fá þau í heimsókn.

Helgina eftir komu Valey Sara, Þröstur og Krissa til mín á föstudagskveldið og var grillað og drukkið, ja þau drukku ég þurfti að vinna dæginn eftir. Á laugardaginn fór ég svo eftir vinnu í bæinn til þeirra og var tekið þá HRESSILEGA á drykkjunni og djamminun, frekar skondnar mynningar þaðan (það sem ég man)…hehe…. 

í dag vaqr ég að koma af norðurlandinu, já ég var þar frá mánudegi til miðvikudags. og hef ég aldrei gert GJÖRSAMLEGA EKKERT fyrir norðan, ég datt ekki einu sinni í það… ´pælið aðeins í því…

Til gamanns má geta að eftir allt þetta þá er ég að vinna í að fá mér eitt stykki kærustu ef mér ver’ur ekki neitað. ef svo fer þá bara er það svoleiðis en ef ég næ að hífa hana inn þá held ég að það yrði geggjað:D en svo fer sem vera ber, ég held nebbla að það yrði erfitt fyrir mig að vera einn í sambandinu…hehe…

En já smá pæling. ég talaði soltið MJÖG lengi í síman í gær og ég var spurður að því hvort ég fengi aldrei svona aulaspurningu í kollinn sem ég verð að spyrja næsta mann að. ég sagði auðvitað hef ég fengið svoleiðis spurn í kollinn, en því miður þá man ég enga í augnablikinu. kannski að því að allar mínar spurningar eru aulalegar:S veit ekki því ég heyri þær ekki ég spyr bara…hahaha… en mín pæling er er ég og þessi manneskja þær einu sem fá svona spurningar eða eru það fleyri? látið vita…

En nóg í bili er að fara að klóra mér í rassinum eða klæmast við einhverja….hóhóhó…hehe…

Kominn heim

21. júlí 2008 - 4 ummæli

Jæja þá er maður kominn heim í góða lífið og voru þau gömlu fljót að koma sér í frí. en það er allt í lagi.

Ég er loksins búinn með öll verkefnin í verknáminu en þá er bara plöntusafnið eftir og gengur það svona lala…

Það er lítið annað að frétta. Sakna allra fyrir norðan en það er samt gott að vera hérna heima.

vorverkin

20. maí 2008 - 2 ummæli

það varð smá villa hjá mér en hi færslan á að vera hérna

Vorverkin

29. apríl 2008 - 2 ummæli

Jæja… hér er ég… hvar eru þið?

ég fór heim síðustu helgi og það var geggjað. Halli kom með mér suður og vorum við að vinna allan tíman, það er þvílíkur munur hvað maður nennir að gera heima hjá sér og nennir engu annarsstaðar.

við byrjuðum að plægja svo þegar ég kom aftur norður eða réttara þá heitir það að tæta.

 Gísli var steggjaður á laugardaginn og það var geggjað. hann var kæddur upp í kúabúning og vígðum við róbótinn í Hvassafelli með því að setja hann í robban og mjólka hann. það var fyndið.

en nenni ekki að skrifa meir er farinn að glápa á tv.

verði þér að góðu Heiða mín

vinna, djamma og lítið annað

14. apríl 2008 - Ein ummæli

jæja þá er fyrsta vikan búin af verknámin og það er bara mjög gaman. er búinn að vera að vinna frá 8 tímum upp 12 tíma á dag og skrifa svo í dagbókina.Ég er samt búinn að gera eitt verkefni á samt efir að skila því.

á föstudagsköldið fór ég með H unum tveimur í bíó á Superhero movie og það ver geggjað. Hjálmar var orðinn góður í því þannig að ég var dreginn á fillerý það kvöld. en það var gaman.

söngvakepi framhaldskólana var um helgina, ég og Heiða ætluðum að fara saman á kepnina en því miður fengum við enga miða, en við redduðum því því þá var bara drukkið heima í stofunni og horft á kepnina það var stuð. svo eftir kepnina þá fórum ég og Heiða í drykkjuleik húnn varð soltið góð en ég fann lítið á mér. síðan var haldið niður í bæ og djammað. Á sunudaginn var vaknað og farið og fengið sér að eta. Hjálmar fékk fjórhjól í láni´á laugardaginn minnir mig og það ver lítið stoppað ég tók aðeins í það á sunnudaginn en annars var bara farið og keypt sér nammi og glápt á tv og farið svo í sund.

er svo kominn aftur á Hríshól og er búinn að vera vinna núna í 12 tíma í dag.

en ég er farinn 

verknám

7. apríl 2008 - Ein ummæli

Jæja þá er mður mættur á Hríshól til að vera í verknáminu. þetta verður held ég mjög gaman að vera hérna í verknáminu. það er 190 hp Fent traktor hérna:D snild maður svo eru þau með flatgrifjur og stórbagga þannig að heyskapurinn verður bara snild vinur.

ég náði bókfærslunni…. með 8.. spáið í því ég með 8 í bókfærslu að öllum fögunum, það er spes, en kúl.

ég fór norður í gær, Heiða og Hjálmar komu með mér, það var gamann

ömm veit ekki meir þannig að ég er farinn að rita dagbók

seeya

Enn í prófum

2. apríl 2008 - Ein ummæli

Jæja þá eru prófin að vera búin. ég vqar hérna á eyrinni um helgina að læra og það var glatað… það var geggjað vður alla helgina og búið að vera það allveg þanngað til í dag. nema hvað sól og heitt en alltaf er þetta anskotanns rok rassga hérna þannig að maður nenir alls ekki að drulla sér út, en svona er þetta. lítið að frétta eingar einnkannir komnar samt eru allir kennararmir búnað fara yfir prófin sín en svona er þetta í þessum skóla það er ekkert hugsað út í enda. fer norður á sunnudaginn og byrja í verknáminu á mánudaginn.

Í gær var fyrsti apríl. Það var reynt að gabba mig og það hefði tekist ef manneskjan sem gerði það hefði ekki setið hliðin á mér þegar hún var að senda smsin. þannig var að stelpan sendi sms á allan bekkin með fyrirmæli um að allir ættu að mæata út í gammla skóla að tala við einn kennarann útaf prófinu. Gallin var hún sendi smsin 30 mín áður en við áttum að mæta þannig að það fór engin… nema ein hún hljóp af stað og það var vel h legið að því.

Ég á hvað að prufa að gabba einn mað því að biðja hann um að koma og gefa bílnum hjá vini mínu rafmagn(það trúir nottla engin að galantin verði rafmagslaus)hehe ne bíllin er gömul coroolla og hann kom og svo þegar hann var búnað leggja bílnum sínum við hinn bílinn´þá hló ég eins og asni og hann fattaði ekkert þanngað til ég sagði “1 apríl” þá bara ohh og honum fannst þetta ekkert fyndið, en ég hló haha.

annað er ekki að fréttta þannig að bara ég er farinn